Segir Katrínu verða næsta forseta Íslands

Elliði spáir því að Katrín verði næsti forseti Íslands.
Elliði spáir því að Katrín verði næsti forseti Íslands. Samsett mynd

Næsti forseti Íslands verður Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ef marka má skrif Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss. 

„Nokkur orð um komandi kosningar til forseta,“ svona hefst stutt færsla á facebook-síðu Elliða þar sem hann vísar í grein á heimasíðu sinni elliði.is

Í greininni segir Elliði að Katrín Jakobsdóttir hafi verið með eyrað við jörðina.

„Hlustað, metið og pælt í því hvað hún eigi að gera varðandi forsetaframboð.“

Þar fer hann jafnframt yfir vísbendingar sem hann segir staðfesta grun sinn á yfirvofandi framboði Katrínar. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert