Nálægð við flugvöllinn vekur athygli úti í heimi

Skjáskot/express.co.uk

Eld­gosið sem braust út á Sund­hnúkagígaröðinni í gærkvöldi hefur vakið at­hygli út fyr­ir land­stein­ana ef marka má umfjallanir í hinum ýmsu erlendu miðlum.

Fréttaflutningurinn er mis­drama­tísk­ur en flestir fjölmiðlarnir virðast þó fjalla um málið af yfirvegun. 

Fréttastofa breska ríkisútvarpsins fjallar um neyðarástand á Íslandi í kjölfar gossins á Reykjanesskaga. 

Danska ríkisútvarpið birti frétt með fyrirsögninni „Aftur gýs í íslensku eldfjalli" og lætur myndband af gosinu fylgja. 

Norska ríkisútvarpið ræddi við norska stúlku sem er stödd á Íslandi ásamt skólafélögum sínum. Þegar hún lenti á Keflavíkurflugvelli fyrr í dag sá hún gosið vel úr lofti.  

View this post on Instagram

A post shared by BBC News (@bbcnews)

Einnig hefur verið fjallað um gosið í fréttamiðlunum BBCCNNReu­tersSVTMETRO og Bloom­berg.

Erlendu fréttirnar eiga það flestar sameiginlegt að fjalla um þá staðreynd að um sé að ræða fjórða gosið á stuttum tíma og nálægð gossins við Bláa lónið.

Einnig er nálægðin við Keflavíkurflugvöll oft til umfjöllunar og þá tekið fram að flugumferð fari fram með eðlilegum hætti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert