Appelsínugul viðvörun í gildi á Vestfjörðum

Spáð er norðaustan stormi á Vestfjörðum.
Spáð er norðaustan stormi á Vestfjörðum. Kort/Veðurstofa Íslands

Appelsínugul viðvörun tók gildi á Vestfjörðum klukkan 6 í morgun og verður hún í gildi til klukkan 2 í nótt.

Spáð er norðaustan stormi, 18 til 25 metrum á sekúndu og talsverðri snjókomu og skafrenningi með mjög lélegu skyggni. Ekkert ferðaveður er á svæðinu.

Gul viðvörun tekur gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra klukkan 8 í dag og á Breiðafirði klukkan 9 þar sem spáð er norðaustan stórhríð.

Veðurspáin á landinu í dag er þannig að spáð er norðaustan 18 til 25 metrum á sekúndu á norðvestanverðu landinu, en suðvestan 13-18 m/s við suðurströndina, annars verður mun hægari vindur. Snjókoma eða slydda verður norðan til, sums staðar talsverð ofankoma, en rigning eða slydda með köflum sunnan- og austanlands. Hiti verður á bilinu 0 til 6 stig. Snýst í norðan og norðvestan 15-23 í kvöld og kólnar.

Norðan 13-20 m/s verða á morgun. Snjókoma og hiti verður um og undir frostmarki um norðanvert landið, en að mestu skýjað og þurrt að kalla og hiti á bilinu 2 til 8 stig syðra.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert