Myndir: Verða að störfum til myrkurs

Slökkviliðsstjórinn í Grindavík segir að vel hafi tekist að manna …
Slökkviliðsstjórinn í Grindavík segir að vel hafi tekist að manna vaktir í dag. mb.is/Hörður Kristleifsson

„Við höfum náð að halda þessu í skefjum,“ segir Einar Sveinn Jónsson, slökkviliðsstjóri í Grindavík, í samtali við mbl.is um gróðureldana við gosstöðvarnar.

„Þetta gengur svona hægt en markvisst í rétta átt,“ segir hann en aðgengi að eldunum er ekki gott. 

Ljósmyndirnar tók Hörður Kristleifsson fyrr í dag. Hann birt­ir jafn­an ljós­mynd­ir sín­ar á Instagram-reikningi sem hann held­ur úti.

Ekki hefur verið talin þörf á að óska eftir aðstoð …
Ekki hefur verið talin þörf á að óska eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar enn sem komið er. mbl.is/Hörður Kristleifsson

Tankbíll frá björgunarsveitinni í Vík í Mýrdal er nýkominn á svæðið og var að hefja störf er blaðamaður ræddi við Einar um klukkan hálf sex.

Ekki hefur verið talin þörf á að óska eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar enn sem komið er. 

Horft yfir gígana í dag.
Horft yfir gígana í dag. mbl.is/Hörður Kristleifsson

Vinnan miðar að því halda eldunum í skefjum

Einar segir að slökkviliðið verði að störfum þar til myrkur skellur á og svo verði staðan metin í fyrramálið. Hann segir að þrátt fyrir að í dag sé föstudagurinn langi hafi vel tekist að manna vaktirnar hjá slökkviliðinu. 

Að sögn Einars eru kjöraðstæður fyrir gróðurelda en jarðvegurinn er þurr og engin rigning er í veðurspánni næstu daga.

„Þetta eru bestu aðstæður,“ segir hann.

Eldgosið hófst fyrir tæpum tveimur vikum.
Eldgosið hófst fyrir tæpum tveimur vikum. mbl.is/Hörður Kristleifsson

Einar segir að gróðureldarnir séu enn sem komið er ekkert í líkindum við eldana sem loguðu við eldgosið við Litla-Hrút síðasta sumar. 

„Okkar vinna miðast við það að reyna halda því niðri.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert