Lögregla hefur hætt rannsókn

Kæran hefur verið felld niður.
Kæran hefur verið felld niður. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan hefur nú hætt rannsókn máls vegna kæru gegn Semu Erlu Serdaroglu og Maríu Lilju Ingveldar-Þrastardóttur þar sem ekki er talinn grundvöllur til að halda henni áfram.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Helgu Völu Helgadóttur lögmanni þar sem segir jafnframt að kæran hafi ekki verið studd neinum gögnum og „að því er virðist eingöngu innihaldslaust hugarfóstur kæranda, í þeim tilgangi að hræða baráttufólk fyrir mannréttindum“.

María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir og Sema Erla Serdaroglu.
María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir og Sema Erla Serdaroglu. Samsett mynd

„Því miður þá hefur orka tveggja forsvarskvenna aðgerða Solaris í Kaíró, þeirra Semu Erlu Serdaroglu og Maríu Lilju Ingveldar-Þrastardóttur, farið í það undanfarna daga að verjast tilhæfulausri kæru Einars S. Hálfdánarsonar, sem sakaði þær meðal annars um refsiverð brot við fjársöfnunina og að hafa borið mútufé í erlenda opinbera starfsmenn í tengslum við aðstoð sína við palestínskt fólk á flótta.

Slíkar pólitískar ofsóknir og algjörlega tilhæfulausar kærur skipta vitanlega engu máli í stóru myndinni því verkefni Solaris hjálparsamtaka eru mikilvægari en svo að láta slíkt trufla. Þær eru hins vegar fyrst og fremst merki um tilraun manns með sterk tengsl við valdakerfið til að eyðileggja orðspor fólks og valda því skaða, m.a. hafa af því lífsviðurværið, þar sem kærunni var meðal annars dreift til vinnuveitenda hinna kærðu, allt í þeim tilgangi að stöðva baráttuna fyrir mannréttindum,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert