Hryðjuverkamálinu áfrýjað til Landsréttar

Aðalmeðferð í hryðjuverkamálinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Aðalmeðferð í hryðjuverkamálinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkissaksóknari hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í hryðjuverkamálinu svokallaða til Landsréttar. Þetta staðfestir Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari í svari við fyrirspurn mbl.is. Áfrýjað er til sakfellingar fyrir tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í þeirri tilraun, en þeir Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson voru sýknaðir í héraði af þeim hluta málsins.

Þá krefst ríkissaksóknari einnig staðfestingar á sakfellingu í þeim hluta málsins sem snýr að vopnalagabroti, auk þess að fara fram á refsiþyngingu.

Sindri Snær var í héraði dæmd­ur í tveggja ára fang­elsi. Ísi­dór hlaut átján mánaða dóm. Voru þeir dæmd­ir fyr­ir brot gegn vopna­laga­gjöf, en sýknaðir af til­raun til hryðju­verka og hlut­deild í til­raun til hryðju­verka.

Einnig voru gerð upp­tæk ýmis tæki, vopn og ann­ar búnaður sem var í fór­um mann­anna.

Verjendur mannanna sögðu eftir dómsuppkvaðningu í héraði að dómurinn væri mikill léttir en sá sama tíma áfellsidómur yfir vinnu­brögðum lög­reglu og ákæru­valds.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert