Myndskeið: Hrópað og kallað á Bjarna af þingpöllum

Hróp og köll heyrðust ofan af þingpöllum þegar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og nýr forsætisráðherra, flutti yfirlýsingu forsætisráðherra á þingfundi sem hófst klukkan 15.

Bjarni hafði vikið máli sínu að landamærunum þegar áhorfandi byrjaði að hrópa.

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, var fljótur að bregðast við og hringja bjöllunni.

Gestir á bekkjunum verða að víkja

„Gestir á bekkjunum geta ekki kallað fram í,“ sagði Birgir er hann reyndi að ná tökum á stöðunni.

„Gestir á bekkjunum verða að víkja af bekkjunum,“ sagði Birgir og hringdi bjöllunni aftur. „Gestir á bekkjunum verða að víkja og hafa þögn,“ ítrekaði þingforsetinn.

Bjarni hélt þá máli sínu áfram og áhorfandinn sömuleiðis.

Ekki leið þó á löngu þar til ekki heyrðist lengur í áhorfandanum í útsendingu Alþingis.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Frá þingpöllum Alþingis.
Frá þingpöllum Alþingis.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert