Náðu að losa manninn: Á leið á sjúkrahús

Búið að losa manninn.
Búið að losa manninn. mbl.is/Arnþór

Búið er að ná manninum undan farginu sem hann varð undir þegar þakplata gaf sig á byggingarsvæði við Áshamar á Völlunum eftir hádegi í dag.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er verið að flytja manninn á sjúkrahús. Ekki er vitað um ástand mannsins en hann var með meðvitund þegar viðbragðsaðilar komu að honum.

Slökkviliðið hefur lokið störfum og er að ganga frá búnaði sínum og tekur lögreglan nú við vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert