Vefur Ástþórs hrundi klukkan 20

Netþjónn fyrir vef Ástþórs, nuna.is, þoldi ekki álagið.
Netþjónn fyrir vef Ástþórs, nuna.is, þoldi ekki álagið. mbl.is/Golli

Netþjónn vefs Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda, nuna.is, hrundi upp úr klukkan átta í kvöld. 

Ástþór hafði gefið út tilkynningu um að hann hygðist birta ávarp á nuna.is klukkan 20 en netverjar áttu erfitt með að fara inn á vefsíðuna hans. 

„Það hrundi hjá okkur netþjónninn, það er verið að laga þetta,“ segir Ástþór í samtali við mbl.is. 

Hann segir að þess megi vænta að ávarpið verði komið inn á vefsíðuna á næsta klukkutíma, eða fyrir klukkan 22.

Illa gekk að fara inn á vefsíðuna nuna.is til að …
Illa gekk að fara inn á vefsíðuna nuna.is til að sjá ávarp Ástþórs. Skjáskot/nuna.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert