Tvöfalt fleiri umsóknir um nám í Listaháskóla Íslands

Listaháskóli Íslands.
Listaháskóli Íslands. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Listaháskóla Íslands (LHÍ) bárust tvöfalt fleiri umsóknir um nám við skólann í ár en í fyrra. Skólinn tilkynnti í febrúar að fallið yrði frá skólagjöldum frá hausti í kjölfar boðs Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskólaráðherra, um óskert fjárframlög frá ríkinu gegn afnámi skólagjalda. 

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Kristín Eysteinsdóttir, rektor LHÍ, fagnar aukinni aðsókn í skólann og segir að aldrei hafi jafn margar umsóknir borist. Umsóknarfrestur til náms við flestar deildir skólans rann út fyrir helgi og voru umsóknir tæplega þúsund talsins miðað við 538 umsóknir í fyrra.

„Það er gríðarlega jákvætt að niðurfelling skólagjaldanna sé að hafa þessi áhrif,” er haft eftir Kristínu.

„Þetta staðfestir það sem við héldum, að kostnaðurinn væri stór hindrun fyrir mikið af nemendum.”

Mesta aukningin er í arkitektúr, hönnun og myndlist. Líkt og undanfarin ár er leiklistardeild skólans vinsælust með um tvö til þrjú hundruð umsóknir en þar komast þó aðeins um tíu inn á ári hverju. Rektor telur að aðsókn í skólann verði enn meiri á næsta ári, sérstaklega þegar kemur að námi á meistarastigi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert