Kjarnorkuknúinn kafbátur í heimsókn

Mynd af bandaríska kafbátnum USS California úti fyrir ströndum Íslands …
Mynd af bandaríska kafbátnum USS California úti fyrir ströndum Íslands í janúar. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Kjarnorkuknúinn bandarískur kafbátur, USS New Hampshire, var í stuttri þjónustuheimsókn í íslensku landhelginni í dag. 

Varðskipið Þór fylgdi kafbátnum um landhelgina og í Stakksfjörð, þar sem fram fóru áhafnaskipti og önnur þjónusta við kafbátinn.

Í færslu á Facebook-síðu utanríkisráðuneytisins segir að Landhelgisgæsla Íslands leiði framkvæmd heimsóknarinnar í nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Geislavarnir ríkisins og utanríkisráðuneytið í samræmi við settar verklagsreglur.

Þetta er í fjórða sinn sem kjarnorkuknúinn kafbátur bandaríska sjóhersins kemur í þjónustuheimsókn í íslenska landhelgi eða frá því að utanríkisráðherra tilkynnti 18. apríl á síðasta ári að slíkum kafbátum yrði heimilað að hafa stutta viðkomu úti fyrir ströndum Íslands til að taka kost og skipta út hluta áhafnar.

USS New Hampshire er orrustukafbátur af Virginia-gerð og slíkir kafbátar bera ekki kjarnavopn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert