Úrskurðaður í vikulangt varðhald

Rannsókn lögreglu er hafin á Akureyri.
Rannsókn lögreglu er hafin á Akureyri. mbl.is/Þorgeir

Karlmaður hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í tengslum við andlát konu í fjölbýlishúsi á Akureyri. Talið er að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.  

Þetta staðfestir Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, í samtali við mbl.is. 

Fyrr í dag greindi mbl.is frá því að tæknideild lögreglunnar væri komin til Akureyrar til þess að rannsaka málið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka