Kristinn í 2. sæti hjá Frjálslyndum í Norðvesturkjördæmi

Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður, hefur ákveðið að þiggja 2. sætið á framboðslista Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í maí. Þetta kom fram í fréttum Útvarpsins. Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, verður í 1. sæti listans. Kristinn gekk í þingflokk Frjálslynda flokksins í gær.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert