Ómar og Margrét leiða lista Íslandshreyfingarinnar í Reykjavík

Ómar Ragnarsson.
Ómar Ragnarsson. mbl.is/RAX

Ómar Ragnarsson er í efsta sæti á framboðslista Íslandshreyfingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður og Margrét Sverrisdóttir er í efsta sæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður en flokkurinn kynnti í dag hvernig fimm efstu sætin á framboðslistunum verða skipuð.

Listinn í Reykjavík suður er eftirfarandi:

  1. Ómar Ragnarsson, fréttamaður
  2. Ósk Vilhjálmsdóttir, myndlistarkona og ferðamálafrömuður
  3. Sigríður Þorgeirsdóttir, doktor í heimspeki
  4. Elvira Méndez Pinedo, doktor í Evrópurétti
  5. Snorri Sigurjónsson, lögreglufulltrúi.

Efstu menn í Reykjavík norður eru:

  1. Margrét Sverrisdóttir, borgarfulltrúi
  2. Ólafur Hannibalsson, blaðamaður
  3. Sigurlín Margrét Sigurðardóttir, varaþingmaður
  4. Guðrún Ásmundsdóttir, leikari og leikskáld
  5. Ragnar Kjartansson, myndlistar og tónlistarmaður.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert