Brimborg styrkir alla stjórnmálaflokka um 300 þúsund krónur

Brimborg hefur ákveðið að styrkja alla þá stjórnmálaflokka, sem þess óska og bjóða fram í öllum kjördæmum við komandi alþingiskosningar, um 300 þúsund krónur hvern. Var þetta ákveðið í kjölfar óska frá stjórnmálaflokkum um fjárframlög.

Í tilkynningu segir Brimborg, að pólitísk afstaða fyrirtækisins sé sú, að fyrirtækið vilji leggja sitt að mörkun til að örva heilbrigð og frjáls skoðanaskipti í þjóðfélaginu og það megi styrkja og efla lýðræðið í landinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert