Samfylking og VG samherjar í að fella stjórnina

Samfylking og Vinstri grænir hafa nálgast í áherslum undanfarið að mati Steingríms J. Sigfússonar, formanns VG, en í kosningaþætti Stöðvar 2 í gærkvöldi var hann spurður hvort útilokað væri að flokkarnir tveir gætu náð saman. Sagði hann að friðsamlegra hefði verið á milli flokkanna hvað varðaði áherslur í félagsmálum og öðrum slíkum málefnum.

„Samfylkingin er vissulega að sækja dálítið inn í okkar málaflokka núna og við vildum gjarnan sjá að þau væru duglegri við að reyna að herja á hina hliðina og ná fylgi frá hægri. En gott og vel, við ætlum ekki að standa í neinum átökum. Við erum samherjar í því að fella þessa ríkisstjórn og vonandi leiðir það til farsæls samstarfs."

Ekki á að lofa neinum lækkunum

Geir H. Haarde forsætisráðherra sagðist í þættinum tilbúinn að taka þátt í því að endurskoða eftirlaunalög þingmanna og ráðherra í samstarfi við alla flokka. Tók hann það fram að þegar lögin voru samþykkt var frumvarpið flutt af öllum flokkum á Alþingi. Frumvarpið var hins vegar mikið gagnrýnt utan og innan þings.

„Það sem þarna var um að tefla og kannski stingur í augu er það að einstaka menn geta verið á eftirlaunum jafnhliða því sem þeir eru á launum frá hinu opinbera. Þó að það sé reyndar almenn regla að menn geti gert það þá er það kannski ekki viðeigandi um þennan hóp manna," sagði Geir.

Í sama þætti sagðist Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, telja að ekki ætti að lofa neinum skattalækkunum núna. „Ef það verður svigrúm á kjörtímabilinu eigum við að fara fyrst og fremst í að hækka skattleysismörkin."

Hvað varðar verðtryggingu inn- og útlána sagði Ingibjörg að ekki væru forsendur til þess að afnema verðtryggingu við þær aðstæður sem væru núna. „Það er líka engin ástæða til að banna hana, en fólk á að hafa val um hvort það vill taka verðtryggingu eða vexti. En til þess að það sé raunverulegt val þarf náttúrlega að ná niður vöxtunum í samfélaginu," sagði Ingibjörg.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Laugardaginn 18. desember

Fimmtudaginn 2. desember

Miðvikudaginn 1. desember

Þriðjudaginn 30. nóvember

Fimmtudaginn 25. nóvember

Mánudaginn 22. nóvember

Laugardaginn 20. nóvember

Miðvikudaginn 17. nóvember

Föstudaginn 12. nóvember

Miðvikudaginn 10. nóvember

Miðvikudaginn 3. nóvember

Þriðjudaginn 2. nóvember

Mánudaginn 25. október

Fimmtudaginn 21. október

Þriðjudaginn 19. október

Mánudaginn 18. október

Sunnudaginn 17. október

Laugardaginn 16. október

Föstudaginn 15. október

Fimmtudaginn 14. október

Mánudaginn 11. október

Laugardaginn 9. október

Föstudaginn 8. október

Fimmtudaginn 7. október

Föstudaginn 1. október

Fimmtudaginn 23. september

Miðvikudaginn 22. september

Þriðjudaginn 21. september

Miðvikudaginn 8. september

Miðvikudaginn 1. september

Mánudaginn 30. ágúst

Miðvikudaginn 25. ágúst

Þriðjudaginn 24. ágúst


finnur.is