Samfylkingin kveður þingmenn og býður nýja velkomna

Rannveig Guðmundsdóttir er einn þeirra þingmanna Samfylkingarinnar, sem ekki sóttust …
Rannveig Guðmundsdóttir er einn þeirra þingmanna Samfylkingarinnar, sem ekki sóttust eftir endurkjöri. Hún fékk góðar móttökur hjá Össuri Skarphéðinssyni, formanni þingflokksins, í kvöld. mbl.is/ÞÖK

Samfylkingin heldur í kvöld hóf þar sem þingmenn, sem ekki taka sæti að nýju á Alþingi á þessu kjörtímabili, eru kvaddir og jafnframt eru nýir þingmenn flokksins boðnir velkomnir.

Gera má ráð fyrir að talsvert verði rætt um stjórnarmyndunarviðræðurnar, sem Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur eiga nú í en formenn flokkanna sögðu í dag að eitthvað hlé yrði nú gert á viðræðunum, sem staðið hafa frá því á föstudag.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, tekur á móti Ellert B. …
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, tekur á móti Ellert B. Schram, nýjum þingmanni flokksins. mbl.is/ÞÖK
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert