Nýir þingmenn taka þátt í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra

Nýir þingmenn úr öllum flokkum taka þátt í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra, sem fer fram á Alþingi í kvöld. Umræðurnar hefjast klukkan 19:50 og standa yfir í um tvær klukkustundir.

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi:

Sjálfstæðisflokkur
Vinstri hreyfingin - grænt framboð
Samfylkingin
Framsóknarflokkur
Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Geir H. Haarde forsætisráðherra í fyrstu umferð, Ólöf Nordal, í annarri umferð og Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstrihreyfinguna - grænt framboð verða Steingrímur J. Sigfússon, í fyrstu umferð, í annarri Katrín Jakobsdóttir og í þriðju umferð Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra í annarri og Guðbjartur Hannesson í þriðju umferð.

Fyrir Framsóknarflokk tala Guðni Ágústsson í fyrstu umferð, í annarri Siv Friðleifsdóttir og í þriðju umferð Höskuldur Þórhallsson.

Fyrir Frjálslynda flokkinn tala í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, Kristinn H. Gunnarsson í annarri umferð en í þriðju umferð Jón Magnússon.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert