Lífeyrissparnaðurinn sá mesti

Lífeyrissparnaður Íslendinga sem hlutfall af landsframleiðslu er í fyrsta skipti orðinn sá mesti í heimi, samkvæmt tölum, sem Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunin, OECD, hefur birt. Samkvæmt tölunum,  sem eru frá árinu 2006, var lífeyrissparnaður Íslendinga 132,7% af vergri landsframleiðslu það ár, ívið meiri en sparnaður Hollendinga, 130% og Svisslendinga, 122,1%.

Að meðaltali var lífeyrissparnaður 72,5% af landsframleiðslu hjá OECD ríkjunum í árslok 2006. Auk landanna þriggja, sem nefnd eru hér að ofan, voru þrjú lönd með hærra hlutfall: Ástralía, 94,3%, Bretland, 77,1% og Bandaríkin, 73,7%. Finnland var rétt neðan við meðaltalið með 71,3%.

Hlutfallið í Kanada og Írland var um 50%, í Danmörku var hlutfallið 32,4%, í Svíþjóð 9,5% og í Noregi 6,8% Þar bætist raunar við olíusjóðurinn, sem nú nefnist eftirlaunasjóður norska ríkisins. Væri honum bætt við má áætla, að Noregur sé í röðinni á milli  Ástralíu og Bretlands.

Í Frakklandi, Lúxemborg og Tyrklandi er hlutfallið 1% en lægst er það í Grikklandi, 0%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert