Atli stefnir á 1. sæti

Atli Gíslason.
Atli Gíslason.

Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, hefur greint kjörnefnd flokksins í Suðurkjördæmi frá því að hann hafi ákveðið að taka þátt í forvali og stefni á að skipa 1. sæti framboðslistans.

Framboðsfrestur rennur út  kl 17 í dag. Kosið verður póstkosningu og skulu atkvæðaseðlar hafa verið póstlagðir eigi seinna  en miðvikudag 25. febrúar. Allir félagar fá send kjörgögn ásamt upplýsingum um frambjóðendur. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert