Níu í forvali Framsóknar

Níu einstaklingar tilkynntu um þátttöku í póstkosningu Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Þeirra á meðal er Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður, sem gekk í flokkinn í fyrrakvöld.

Þáttakendurnir eru:

Björg Reehaug Jensdóttir, launafulltrúi og nemi,  Ísafirði
Elín Líndal, bóndi og framkvæmdastjóri Lækjamóti, Húnaþingi –vestra
Friðrik Jónsson, alþjóðastjórnmálafræðingur, Akranesi
Guðmundur Steingrímsson, blaðamaður, Reykjavík
Gunnar Bragi Sveinsson, formaður byggðaráðs, Skagafirði
Halla Signý Kristjánsdóttir, skrifstofu- og fjármálastjóri, Bolungarvík
Kristinn H. Gunnarsson, Alþingismaður, Bolungarvík
Margrét Þóra Jónsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, Akranesi
Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, bóndi, Bakkakoti, Borgarbyggð.

Kjörnefnd fer um helgina yfir þau gögn sem frambjóðendur sendu nefndinni og stefnir að því að staðfesta framboðin á kynningarfundi í Borgarnesi 1. mars ásamt því að draga um röð frambjóðenda á kjörseðli.

Póstkosningin fer fram dagana 3. til 13 mars og rétt til þátttöku hafa allir félagar í Framsóknarfélögum í kjördæminu.  Kosið verður um fimm efstu sætin. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert