Fá að senda einn tölvupóst frá Valhöll

Valhöll, hús Sjálfstæðisflokksins.
Valhöll, hús Sjálfstæðisflokksins.

Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fá í aðdraganda prófkjörsins að senda einn tölvupóst frá Valhöll til sjálfstæðismanna í kjördæminu til að kynna sig og áherslur sínar. Er þetta gert til að draga úr kostnaði frambjóðenda við prófkjörið.

Þetta kemur fram í tölvupósti, sem Marta Guðjónsdóttir, formaður Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, hefur sent til sjálfstæðismanna í borginni. 

Þá hefur verið opnaður vefurinn  profkjor.is þar sem verða upplýsingar um frambjóðendur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert