Kolbrún í varaformannsframboð hjá Frjálslyndum

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir

Kolbrún Stefánsdóttir segist í tilkynningu hafa ákveðið að bjóða sig fram til varaformanns Frjálslynda flokksins. Hún er nú ritari flokksins og mun leiða lista flokksins í Suðvesturkjördæmi.

„Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í embætti varaformanns Frjálslynda 
flokksins. Frá síðasta landsfundi hef ég verið ritari flokksins, en 
ástæða þess að ég hef nú ákveðið að gefa kost á mér til varaformanns 
er m.a. sú, að mér haf borist áskoranir sem ég get ekki litið 
framhjá. Ég tel embætti varaformanns vera verðugt verkefni og að ég 
geti gert flokknum meira gagn í því embætti.  Frjálslyndi flokkurinn 
hefur alltaf lagt áherslu á jafnræði landsbyggðarinnar og 
höfuðborgarsvæðisins.  Ég var lengi búsett og starfandi á 
landsbyggðinni og þekki líf og þarfir landsbyggðarfólks,en er núna 
búsett á höfuðborgarsvæðinu og get því borið þetta tvennt saman. Ég 
vænti þess að viðhorf mín og reynsla komi að gagni í þessu embætti,“ segir í yfirlýsingu Kolbrúnar Stefánsdóttur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert