Ekki samkomulag í nefndinni

Óvíst er hvenær þingi lýkur.
Óvíst er hvenær þingi lýkur. mbl.is/Ómar

Ekkert samkomulag náðist á fundi sérnefndar um stjórnarskrármál á Alþingi upp úr hádeginu. Þetta þýðir, að fram koma nefndarálit meirihluta og minnihluta nefndarinnar.  Formenn stjórnmálaflokkanna hafa setið á fundi í dag en ekki er ljóst hvort tekist hafi samkomulag um þinglok.

Gert er ráð fyrir að fulltrúar Samfylkingarinnar, VG, Framsóknarflokks og Frjálslynda flokksins, leggi til að frumvarpið komi óbreytt til þriðju umræðu, þar á meðal ákvæði um stjórnlagaþing.

Sjálfstæðismenn í nefndinni munu leggja fram sérálit þar sem þeir leggja til að breytingar á stjórnarskránni verði eins og stjórnarskrárnefnd, skipuð fulltrúum allra flokka, lagði til 2007. Þær tillögur lutu eingöngu að því hvernig breytingum á stjórnarskrá verði háttað.

Þingmenn Sjálfstæðismannar leggja auk þess til að skipuð verði stór nefnd um heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar sem skili af sér eftir tvö ár.

Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, sagði í þingumræðum, að sér væri brugðið eftir fundinn í stjórnarskrárnefndinni en þar hefðu sjálfstæðismenn fellt grímuna með því að leggja til, að ekki yrðu gerðar breytingar á auðlindaákvæði stjórnarskrárinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert