Vill að yfirkjörstjórnarmenn víki

Ástþór Magnússon, forsvarsmaður Lýðræðishreyfingarinnar krefst þess að oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður víki sæti. Þá krefst Ástþór þess að kjörstjórnarmenn yfirkjörstjórna beggja Reykjavíkurkjördæmanna afhendi upplýsingar um tengsl sín við stjórnmálaflokkana og útrásarfyrirtæki.

Ástþór hefur kært til landskjörstjórnar, úrskurði yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæmanna sem mátu framboð Lýðræðishreyfingarinnar ógild. Hann krefst þess að úrskurðir yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæmis norður og suður frá í dag verði felldir úr gildi. Þá krefst hann þess að staðfest verði að framboðslistar Lýðræðishreyfingarinnar, P-lista, í Reykjavíkurkjördæmunum séu gildir framboðslistar.
 
Í greinargerð með kærunni til landskjörstjórnar segir að varðandi hæfi oddvita yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmis norður sé á því byggt að Erla Árnadóttur oddviti yfirkjörstjórnar Reykjavíkur norður sé lögmaður á sömu lögmannstofu og fyrirrennari hennar Þórunn Guðmundsdóttir, lögmannsstofunni Lex, en lögmannsstofan hefur mikið starfað fyrir útrásarvíkingana.

„Þórunn sagði í sjónvarpi fyrir framan þjóðina í janúar 2008 að það væri nauðgun á lýðræðinu í landinu, byði Ástþór sig aftur fram í kosningum hér á landi. Þá lét Þórunn að því liggja að Ástþór hefði blekkt kjósendur í forsetakosningunum árið 2004.“

Þá segir að Lex starfi einnig fyrir Ólaf Ólafsson og Samskip en Ástþór stendur nú í málaferlum við þessa aðila eftir að hafa lýst því yfir að hann vilji að lögregla kanni bókhaldsóreiðu hjá Samskip.

Um kröfu um afhendingu upplýsinga er á því byggt að úrskurðir yfirkjörstjórna séu til komnir af annarlegum ástæðum sem rekja megi til þess að Ástþór vilji beita sér fyrir því að útrásarvíkingarnir sem settu þjóðina á hausinn sæti gæsluvarðhaldi meðan rannsókn bankahrunsins stendur yfir og að það fari fram lögreglurannsókn á fjármálum stjórnmálaflokkanna og hugsanlegri mútuþægni þeirra.

„Um úrskurðina er það að segja að við hjá Lýðræðishreyfingunni höfum fylgt leiðbeiningum þeim sem við höfum fengið frá dómsmálaráðuneytinu í hvívetna. Þá vísum við til þess að það sé ótvírætt að allir frambjóðendur hafa staðfest með undirskrift sinni vilja sinn til að vera í  framboði fyrir Lýðræðishreyfinguna á þeim lista þar sem yfirlýsingin er lögð fram. Enn fremur hafa fjögur kjördæmi úrskurðað framboðslista hreyfingarinnar að fullu gilda en þeir voru lagðir fram með sama formi og í Reykjavíkurkjördæmunum,“ segir í kæru Ástþórs Magnússonar til landskjörstjórnar.

Þá segir að lagðir hafi verið fram meðmælalistar í samræmi við leiðbeiningar dómsmálaráðuneytisins sem ráðuneytið hafði fengið í tengslum við umsókn um listabókstaf. Yfirkjörstjórnir Reykjavíkurkjördæmanna hafi sent fulltrúa Lýðræðishreyfingarinnar til baka til að safna fleiri undirskriftum þar sem þær höfnuðu þessum tilteknu undirskriftum. Ástþór segir þetta á skjön við yfirlýsingar fulltrúa ráðuneytisins sem hafi staðfest síðast í gærkvöldi að það væri afstaða ráðuneytisins bæði nú og við fyrri kosningar að slíkir meðmælendalistar væru fullgildir sem meðmælendur með framboðslistum.

„Við öfluðum þessara meðmælenda og lögðum fram en þetta varð til þess að dýrmætur tími fór forgörðum og allar tímaáætlanir röskuðust m.a. framboðsfundir með kjósendum,“ segir í niðurlagi greinargerðar með kæru Lýðræðishreyfingarinnar til landskjörstjórnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert