Reiðubúin að leiða næstu stjórn

Hluti fundargesta á Selfossi í morgun.
Hluti fundargesta á Selfossi í morgun. mbl.is/Soffía

Jóhanna Sigurðardóttur, forsætisráðherra, var gestur á fjölmennum fundi Samfylkingarinnar með eldri borgurum, sem haldinn var á Hótel Selfossi í morgun. Jóhanna kynnti stefnu Samfylkingarinnar í velferðarmálum og hverju hefði verið áorkað til þessa.

Að sögn fundargests lagði Jóhanna áherslu á, að máli skipti hvaða sjónarmið væru höfð að leiðarljósi þegar herða þyrfti að í ríkisfjármálum og verja velferðina.

Björgvin G. Sigurðsson, sem skipar 1. sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi, ræddi um samgöngumál og efnahagsmál. Bæði Jóhanna og Anna Margrét Guðjónsdóttir, sem skipar 4. sæti listans, röktu ítarlega afstöðu Samfylkingarinnar í Evrópumálum, hvað hún þýddi fyrir efnahag landsins og alls almennings, m.a. vegna vaxta og verðlags, þjóðareign á auðlindum, landbúnað og fleira.

Jóhanna lagði áherslu á að hún væri reiðubúin að leiða næstu ríkisstjórn, væntanlega í samstarfi sömu flokka og nú, en minnti fundarmenn á að það gerði hún aðeins ef Samfylkingin næði til þess fylgi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert