Kaus í fyrsta sinn á Selfossi

Mynd sunnlendingur.is

Björgvin G. Sigurðsson, efsti maður á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, mætti snemma á kjörstað á Selfossi í morgun.

Atkvæði Björgvins var komið í kjörkassann klukkan 9:10 í morgun, eftir því sem fram kemur á sunnlendingur.is.

Björgvin var nú í fyrsta sinn að kjósa á Selfossi en fram til þessa hefur hann kosið á sínum æskuslóðum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert