Ræða breytingar á stjórnarráði

Frá fyrsta formlega stjórnarmyndunarfundi Samfylkingarinnar og VG í gær.
Frá fyrsta formlega stjórnarmyndunarfundi Samfylkingarinnar og VG í gær. mbl.is/Golli

Skipað hefur verið í starfshóp stjórnarflokkanna um breytingar á stjórnarráðinu, en hann er einn af fjórum hópum sem skipaðir verða. Í hópnum sitja Drífa Snædal og Árni Þór Sigurðsson fyrir hönd Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, en Hrannar Björn Arnarson og Margrét S. Björnsdóttir fyrir hönd Samfylkingarinnar.

Drífa er framkvæmdastjóri VG, Árni Þór er þingmaður, Hrannar Björn er aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur og Margrét er formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar. Hópurinn mun funda eftir hádegið í dag.

Fram hefur komið að Dagur B. Eggertsson og Katrín Jakobsdóttir, varaformenn flokkanna, leiða starfshóp um Evrópumálin og mun hann funda eftir hádegið í dag.

Aðrir starfshópar munu fjalla um ríkisfjármál og atvinnu- og efnahagsmál. Þeir verða skipaðir síðar í dag, samkvæmt heimildum mbl.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert