Kjartan stefnir á annað sætið

Kjartan Magnússon
Kjartan Magnússon

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi, stefnir á annað sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í  Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar á komandi vori, að því er fram kemur í tilkynningu.

„Ég leita eftir stuðningi í 2. sæti framboðslistans þar sem ég tel að
reynsla mín og kraftar muni nýtast Reykvíkingum best verði ég í forystusveit," að því er segir í tilkynningu frá Kjartani.

Kjartan hefur verið borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1999. Hann er formaður Menntaráðs Reykjavíkur og Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Auk þess situr hann í borgarráði, stjórnkerfisnefnd, og stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Á kjörtímabilinu gegndi hann einnig störfum varaforseta borgarstjórnar um hríð, var formaður Menningar- og ferðamálaráðs og átti sæti í forsætisnefnd, skipulagsnefnd og stjórn Faxaflóahafna. Þá var hann formaður Umferðarráðs ríkisins 2007-2008.

Kjartan er 42 ára að aldri og stundaði nám í sagnfræði við Háskóla Íslands. Kona hans er Guðbjörg Sigurgeirsdóttir hjúkrunarfræðingur og eiga þau þrjú börn, tíu ára telpu, sjö ára dreng og sex mánaða stúlkubarn.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert