Tíu í prófkjör á Akranesi

Tíu frambjóðendur hafa gefið kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akranesi, sem fram fer laugardaginn 27. febrúar n.k.

Frambjóðendurnir eru Anna María Þórðardóttir, fótaaðgerðafræðingur, Einar Brandsson, sölustjóri, Eydís Aðalbjörsdóttir, bæjarfulltrúi, Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri, Gunnar Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar, Halldór Jónsson, fjármálastjóri, Íris Bjarnadóttir, háskólanemi, Karen Jónsdóttir, formaður bæjarráðs, Ragnar Már Ragnarsson, byggingafræðingur og Snjólfur Eiríksson, garðyrkjufræðingur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert