Ólafur Þór afgerandi í fyrsta sæti

Ólafur Þór Gunnarsson mun leiða lista Vinstri grænna í Kópavogi.
Ólafur Þór Gunnarsson mun leiða lista Vinstri grænna í Kópavogi. mbl.is

Ólafur Þór Gunnarsson er í fyrsta sæti þegar öll atkvæði í forvali Vinstri grænna í Kópavogi hafa verið talin. Guðný Dóra Gestsdóttir er í öðru sæti, Karólína Einarsdóttir í því þriðja, Guðbjörg Sveinsdóttir í fjórða sæti, Arnþór Sigurðsson í því fimmta og Hreggviður Norðdahl í því sjötta.

Í tilkynningu frá Vinstri grænum segir að kjörsókn hafi verið góð, eða 42,36%. Ólafur hafi verið mjög afgerandi í fyrsta sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert