36% atkvæða sjálfstæðismanna í Kópavogi breytt

Oddvitar framboða í Kópavogi að kvöldi kjördags fyrir viku.
Oddvitar framboða í Kópavogi að kvöldi kjördags fyrir viku. mbl.is/hag

Alls var 1483 atkvæðum sjálfstæðismanna í Kópavogi breytt eða 36% þeirra atkvæða sem flokkurinn fékk. Í heild var 1745 atkvæðum í Kópavogi breytt ýmist með því að strika út nöfn frambjóðenda eða með því að færa þá til um sæti. 

Þetta kemur fram á vef Kópavogsbæjar en kjörstjórn Kópavogs hefur nú tekið saman upplýsingar um breytta seðla í kosningunum.

Alls var 1483 atkvæðum sjálfstæðismanna í Kópavogi breytt eða 36% þeirra atkvæða sem flokkurinn fékk. Í heild var 1745 atkvæðum í Kópavogi breytt ýmist með því að strika út nöfn frambjóðenda eða með því að færa þá til um sæti. Alls voru gild atkvæði í Kópavogi 13.734.

Alls 111 atkvæðum Samfylkingarinnar var breytt eða 3% atkvæða flokksins. Alls 88 atkvæðum Framsóknarflokksins var breytt eða 9% atkvæða flokksins. Alls 29 atkvæðum Vinstri grænna var breytt eða 2% atkvæða flokksins.

Alls 18 atkvæðum Næst besta flokksins var breytt eða 1% atkvæða til flokksins. Alls 15 atkvæðum var breytt hjá Lista Kópavogsbúa, eða 1% og einu atkvæði var breytt hjá Frjálslynda flokksins, eða 1% atkvæða framboðslistans.

Hjá sjálfstæðismönnum var nafn Gunnars I. Birgissonar, 3. sæti, oftast strikað út en það gerðu 897 kjósendur og nafn Ármanns Kr. Ólafssonar, oddvita listans, var næst oftast strikað út, en það gerðu 697 kjósendur. Alls 57 strikuðu út nafn Hildar Dungal, 2. sæti, en 639 settu hana í 1. sæti. Alls 138 settu Gunnar I. Birgisson í fyrsta sæti listans.

Hjá Framsóknarflokknum var nafn Ómars Stefánssonar oddvita oftast strikað út en það gerði 61 kjósandi flokksins. Hjá Samfylkingu var nafn Guðríðar Arnardóttur, oddvita listans, oftast strikað út en það gerðu 28 kjósendur framboðsins. Hjá Vinstri grænum var nafn Ólafs Þórs Gunnarssonar oddvita oftast strikað út en það gerðu 12 kjósendur listans.

Hjá Lista Kópavogsbúa var nafn Rannveigar H. Ásgeirsdóttur oddvita oftast strikað út en það gerðu 7 kjósendur framboðsins. Hjá Næst besta flokknum var nafn Hjálmars Hjálmarssonar oddvita oftast strikað út en það gerðu 7 kjósendur framboðsins.

Engar útstrikanir voru gerðar á lista Frjálslynda flokksins en einn kjósandi færði oddvitann, Helga Helgason, niður um eitt sæti.

Heildaryfirlit yfir breytingar hjá öllum framboðslistum.

Breytingar á lista Sjálfstæðisflokksins.
Breytingar á lista Framsóknarflokksins.
Breytingar á lista Samfylkingarinnar.
Breytingar á lista Vinstri grænna.
Breytingar á lista Næst besta flokksins.
Breytingar á Lista Kópavogsbúa.
Breytingar á lista Frjálslynda flokksins.  
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert