Fréttaskýring: Aðeins þrír koma af landsbyggðinni
Á kjörskrá voru samtals 232.374, en 83.531 greiddi atkvæði eða 35,95%. Heildarfjöldi ógildra atkvæða var 1.196 eða 1,4%.
Samkvæmt lögum um stjórnlagaþing má kynjamunur ekki vera meiri en 40%, en niðurstaðan varð sú að konur eru 40% þingfulltrúa og karlar 60%. Ekki kemur því til þess að þingfulltrúum verði fjölgað til að jafna kynjahlutfallið.
Ef hægt er að tala um einhvern einn sigurvegara í kosningunum þá er það Þorvaldur Gylfason prófessor en 7.192 settu hann í fyrsta sæti sem er meira en helmingi meira en næsti maður fékk, en það var Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar.
Þorvaldur og Salvör eru bæði starfsmenn Háskóla Íslands, en samtals náðu fimm háskólakennarar kjöri. Mikill meirihluti fulltrúa er með háskólamenntun af einhverju tagi.
Aðeins þrír fulltrúar búa á landsbyggðinni, þ.e. Akureyringarnir Dögg Harðardóttir og Erlingur Sigurðarson og Þingeyingurinn Ari Teitsson. Hugsanlega má flokka Lýð Árnason lækni sem landsbyggðarmann, en hann bjó til skamms tíma á Vestfjörðum.
Íris Lind næst því að ná kjöri
Yngsti fulltrúinn á stjórnlagaþinginu er Ástrós Gunnlaugsdóttir sem varð 24 ára í haust. Freyja Haraldsdóttir er jafngömul. Elstur er hins vegar Ómar Ragnarson, en hann varð sjötugur á árinu.Íris Lind Sæmundsdóttir lögfræðingur var næst því að ná kjöri á stjórnlagaþingið, en síðastur inn var Lýður Árnason. Lögin um stjórnlagaþing gera ekki ráð fyrir neinum varamönnum. Ef einhver forfallast verða þingfulltrúar einfaldlega færri. Landskjörstjórn kemur saman á morgun þar sem gengið verður frá kjörbréfum til þingfulltrúa og er þeim sem náðu kjöri boðið að vera viðstaddir.
Eins og kunnugt er tók talsvert langan tíma að telja, m.a. vegna þess að seðlar sem voru ógildir að hluta voru um 10 þúsund. Það var ekki bara landskjörstjórn sem sá um að tryggja að rétt væri talið því sérstakir menn gerðu sjálfstæða athugun á gæðum talningar. Jóhann Malmquist sagðist vera mjög ánægður með útkomuna. Hann sagði engan vafa leika á því að talningarvélarnar hefðu aukið nákvæmni talningarinnar. Útkoman hefði ekki orðið eins nákvæm ef talið hefði verið í höndunum, en hætta á mistökum við talningu eykst þegar frambjóðendur eru svona margir. Þeir voru 522. Frambjóðendur máttu fylgjast með talningu, en mjög fáir nýttu sér það.
Stjórnlagaþingið kemur saman í febrúar og reiknað er með að það starfi í tvo mánuði. Verkefni þess er að endurskoða stjórnarskrána. Samkvæmt lögunum á þingið sérstaklega að taka til umfjöllunar eftirfarandi: Undirstöður íslenskrar stjórnskipunar og helstu grunnhugtök hennar, skipan löggjafarvalds og framkvæmdavalds og valdmörk þeirra, hlutverk og stöðu forseta, sjálfstæði dómstóla og eftirlit þeirra með öðrum handhöfum ríkisvalds, ákvæði um kosningar og kjördæmaskipan, lýðræðislega þátttöku almennings, framsal ríkisvalds til alþjóðastofnana og meðferð utanríkismála og umhverfismál, þar á meðal um eignarhald og nýtingu náttúruauðlinda.
1. Þorvaldur Gylfason
Er prófessor í hagfræði í Háskóla Íslands. Hefur ritað nítján bækur og á annað hundrað ritgerða og bókarkafla auk 700 blaðagreina. Hann lauk doktorsprófi í Princeton og hefur starfað við kennslu, rannsóknir og ráðgjöf víða um heim.2. Salvör Nordal
Er forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands og menntuð í heimspeki. Er einn höfunda siðfræðihluta skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og hefur tekið virkan þátt í umræðu um orsakir og afleiðingar bankahrunsins.3. Ómar Ragnarsson
Stundaði nám í lagadeild HÍ 1960-1964 og tók atvinnuflugmannspróf 1967. Hefur leikið í leikhúsum frá 1953 og er starfandi skemmtikraftur. Fréttamaður og dagskrárgerðarmaður í sjónvarpi frá 1969. Sjálfstæð kvikmyndagerð frá 2001.4. Andrés Magnússon
Er læknir, með doktorspróf og hefur verið prófessor við íslenska og erlenda háskóla. Hefur unnið öll helstu verkamannastörf til sjós og lands, verkað fisk, starfað við innflutning, þróunarhjálp, á barnaheimilum og kennt jóga.5. Pétur Gunnlaugsson
Embættispróf í lögfræði úr lagadeild Háskóla Íslands 1973. Stundaði nám í heimspeki og sögu í Háskóla Íslands. Er með lögmannsréttindi og er sjálfstætt starfandi lögmaður. Stjórnarformaður Útvarps Sögu og starfar þar sem útvarpsmaður.6. Þorkell Helgason
Nam stærðfræði í Göttingen, München og við MIT, doktorspróf þaðan 1971. Hefur verið prófessor við Háskóla Íslands, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, ráðuneytisstjóri, orkumálastjóri og stjórnarformaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands.7. Ari Teitsson
B.Sc.-próf í búvísindum frá Hvanneyri 1973 og sauðfjárbóndi frá sama ári. Héraðsráðunautur og mjólkureftirlitsmaður 1973-1995. Formaður Bændasamtaka Íslands 1995-2004. Stjórnarformaður Sparisjóðs Suður-Þingeyinga frá árinu 1990.8. Illugi Jökulsson
Hefur starfað við blaðamennsku og margvísleg ritstörf, skrifað bækur, greinar, viðtöl og pistla. Illugi hefur meðal annars ritstýrt dagblaði og tveimur tímaritum. Hann hefur einnig unnið við dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi.9. Freyja Haraldsdóttir
Hefur lokið BA-námi í þroskaþjálfafræði og stundar nú meistaranám í fötlunarfræði við HÍ. Hefur starfað talsvert með börnum í leik- og grunnskólum, rekur fyrirtækið Forréttindi og er varaformaður í stjórn NPA-miðstöðvarinnar.10. Silja Bára Ómarsdóttir
MA-gráða og doktorsnám í alþjóðasamskiptum frá University of Southern California. Verkefna- og sviðsstjóri á Jafnréttisstofu 2003-2006, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar HÍ 2006-2008, aðjúnkt við stjórnmálafræðideild HÍ frá 2005.11. Örn Bárður Jónsson
Nam guðfræði í Englandi, vígður djákni 1979, cand.theol. við HÍ 1984, doktorspróf frá Fuller Theological Seminary í Kaliforníu 1995, nám við Yale-háskóla 2009. Verkefnis- og fræðslustjóri Þjóðkirkjunnar 1990-1999. Prestur Neskirkju frá 1999.12. Eiríkur Bergmann
Doktor í stjórnmálafræði, dósent og forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst. Höfundur fjölda bóka og fræðigreina um þjóðfélagsmál, einkum um tengsl Íslands við umheiminn. Hefur stundað kennslu og rannsóknir.13. Dögg Harðardóttir
Er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1985.Lauk B.Sc. prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands 1992 og uppeldis- og kennslufræði frá Háskólanum á Akureyri (HA) 2000. Er í diplomanámi í heilbrigðisvísindum við HA.






