Ástþór segir kosningarnar ólöglegar

Ástþór Magnússon.
Ástþór Magnússon. mbl.is/Golli

Ástþór Magnússon telur forsetakosningarnar sem fara eiga fram á morgun ólöglegar. Ekki hafi verið lagastoð fyrir því að ógilda framboð hans á forsendum innanríkisráðuneytisins og enn liggi engar sannanir fyrir fölsunum á meðmælendalistum.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Ástþóri. Hann segist þann 26. júní sl. lagt inn um bréfalúgu hjá Hæstarétti Íslands afrit af stjórnsýslukæru með móttökustimpli frá innanríkisráðuneytinu. Í kærunni komi fram að hann telji kosningarnar á morgun ólögmætar. Áður hafi Hæstarétti borist erindi frá kjósendum sem telja að brotið hafi verið á honum sem frambjóðanda og á þeim sem kjósendum. 

Ásakanir um falsanir undirskrifta á meðmælendalistum gangi þvert á yfirlýsingar undirskriftarsafnara í fjölmiðlum sem segist engin nöfn hafa falsað. „Þótt fleiri vikur séu nú liðnar síðan þetta mál kom upp hefur samkvæmt upplýsingum frá embætti Lögreglustjórans í Reykjavík engin yfirheyrsla farið fram og meintur falsari gengur laus,“ segir Ástþór m.a. í yfirlýsingunni.

Þá bætir hann því við að innanríkisráðuneytið hafi ekki svarað fyrirspurnum hans um bókun á fundi í ráðuneytinu með frambjóðendum þar sem óskað var að meðmælendalistar annarra frambjóðenda yrðu einnig rannsakaðir. Á fundinum hafi verið bent á lista frá framboði Þóru Arnórsdóttur sem höfðu svipað yfirbragð og þeir listar sem sagðir voru falsaðir.  

„Eftir því sem tíminn líður er að afhjúpast meiri og meiri pólitískur þefur kringum þetta mál. Vinnubrögð innanríkisráðuneytisins og meðförin á framboði mínu er á skjön við góða stjórnsýsluhætti, meðalhófsreglu og eðlileg vinnubrögð í réttarríki lýðræðisþjóðfélags. Forsetakosningar við slíkar aðstæður samrýmast ekki reglum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Íslendingar sem þátttakendur í ÖSE hafa verið gjarnir á að deila á lögmæti kosninga í öðrum löndum sem farið hafa fram með slíku misferli sem nú er að gerast í forsetakosningum hérlendis. Innanríkisráðuneytið hefur ekki svarað fyrirspurnum mínum um hvort stjórnsýslan hafi upplýst kosningaeftirlit ÖSE um málið,“ segir Ástþór að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert