16 taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kraganum

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokssins, er á meðal þeirra sem taka …
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokssins, er á meðal þeirra sem taka þátt í prófkjörinu, en hann sækist eftir 1. sæti. mbl.is/Árni Sæberg

Alls hafa 16 einstaklingar gefið kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi sem verður haldið 10. nóvember nk. Þeir eru eftirfarandi samkvæmt upplýsingum frá yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins í Kraganum.

 1. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins

 2. Bryndís Loftsdóttir, vörustjóri íslenskra bóka

 3. Elín Hirst, fjölmiðlafræðingur og sagnfræðingur

 4. Friðjón R. Friðjónsson, ráðgjafi

 5. Gunnlaugur Snær Ólafsson, upplýsingafulltrúi

 6. Jón Gunnarsson, alþingismaður

 7. Karen Elísabet Halldórsdóttir, varabæjarfulltrúi og skrifstofustjóri

 8. Kjartan Örn Sigurðsson, bæjarfulltrúi

 9. Óli Björn Kárason, ritstjóri og varaþingmaður

10. Ragnar Önundarson, viðskiptafræðingur

11. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, alþingismaður

12. Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri

13. Sveinn Halldórsson, húsasmíðameistari

14. Sævar Már Gústavsson, sálfræðinemi við HR

15. Vilhjálmur Bjarnason, viðskiptafræðingur

16. Þorgerður María Halldórsdóttir, háskólanemi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert