Sjálfstæðisflokkur bætir við sig fylgi

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 11. til 14. apríl. Framsóknarflokkurinn mælist áfram með mest fylgi allra flokka á Íslandi. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 32,7%, borið saman við 30,2% í síðustu mælingu. Pírataflokkurinn bætir við sig fylgi og mælist nú 9,0%, borið saman við 7,8% í síðustu mælingu.

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi og mælist hann nú 22,9% borið saman við 21,2% í síðustu mælingu. Dögun bætir einnig við sig fylgi og mælist nú 3,6%, borið saman við 1,9% í síðustu mælingu. Fylgi Vinstri grænna dregst nokkuð saman og mælist nú 6,7% borið saman við 8,1% í síðustu mælingu. Stuðningur við önnur framboð ýmist stóð í stað eða breyttist lítillega. Samfylkingin mælist með 10,4% fylgi. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 24,6%.

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“.

Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,9% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,8%), myndu skila auðu (5,5%), myndu ekki kjósa (1,4%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,4%).

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 930 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára
Dagsetning framkvæmdar: 11. til 14. apríl 2013


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert