„Þetta er sigurstranglegur listi“

Kjartan Magnússon
Kjartan Magnússon Sigurgeir Sigurðsson

„Ég er sáttur með mitt og sýnist í fljótu bragði að þetta sé mjög sigurstranglegur listi,“ segir Kjartan Magnússon, sem bauð sig fram í annað sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík, en er nú í því þriðja með 1.304 atkvæði í 1.-3. sæti. 

Kjartan segir að spennandi verði að fylgjast með tölunum inn í kvöldið en nokkuð tæpt er á milli Júlíusar Vífils Ingvarssonar sem samkvæmt tölunum er í öðru sæti með 825 atkvæði í 1-2 sæti.

„Ég vill bara þakka öðrum frambjóðendum fyrir drengilega baráttu og stuðningsmönnum mínum fyrir það sem þeir lögðu á sig,“ segir Kjartan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert