40,9% styðja ríkisstjórnina

Ríkisstjórn Íslands.
Ríkisstjórn Íslands. mbl.is/Golli

Stuðningur við ríkisstjórnina mælist 40,9% í nýrri könnun MMR á fylgi stjórnmálaflokka og stuðningi við ríkisstjórnina. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 46,6% í síðustu könnun. Mestur stuðningur er við Sjálfstæðisflokkinn en Björt framtíð mælist með næstmest fylgi allra flokka.

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 25. til 28. febrúar 2014 og var og var heildarfjöldi svarenda 1013 einstaklingar, 18 ára og eldri. 

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 40,9% en mældist 46,6% í síðustu mælingu, sem lauk þann 15. febrúar sl., og  46,0% í janúar sl. 

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 29,0%, borið saman við 29,7% í könnun frá miðjum febrúar og 26,3% frá í janúar.

Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 16,4%, borið saman við 14,8% í síðustu könnun og 15,9% í janúar.

Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 14,6%, borið saman við 15,6% í síðustu könnun og 17,0% í janúar.

Samfylkingin mældist nú með 14,0% fylgi, borið saman við 13,2% í síðustu könnun og 17,0% í janúar.

Vinstri-græn mældust nú með 10,4% fylgi, borið saman við 11,5% í síðustu könnun og 11,0% í janúar.

Pírataflokkurinn mældist nú með 9,3% fylgi, borið saman við 8,8% fylgi í síðustu könnun og 6,9% í janúar. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.

Þróun mælinga má sjá hér.

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“

Fjölda þeirra sem svöruðu „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,3% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,5%), myndu skila auðu (6,3%), myndu ekki kjósa (3,0%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,0%). 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert