Listi Framsóknar í Kópavogi klár

Birkir Jón Jónsson.
Birkir Jón Jónsson. mbl.is/Ómar

Fulltrúaráð framsóknarfélaganna í Kópavogi samþykkti einróma í gærkvöld tillögu að framboðslista Framsóknarflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Efsta sæti listans skipar Birkir Jón Jónsson fyrrverandi alþingismaður, í öðru sæti er Sigurjón Jónsson markaðsfræðingur og í því þriðja Guðrún Jónína Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur.

Framsóknarmenn fengu einn mann kjörinn í sveitarstjórnarkosningunum 2010, Ómar Stefánsson oddvita flokksins. Hann gaf hins vegar ekki kost á sér að þessu sinni.

Framboðslistinn í heild:

1. Birkir Jón Jónsson, fv. alþingismaður/MBA
2. Sigurjón Jónsson, markaðsfræðingur
3. Guðrún Jónína Guðjónsdóttir, hjúkrunarfr./lífsstílsleiðb.
4. Kristinn Dagur Gissurarson, viðskiptafræðingur
5. Ólöf Pálína Úlfarsdóttir, grunnskólakennari
6. Helga María Hallgrímsdóttir, grunnskólakennari/félagsráðgjafi
7. Sigurbjörg Björgvinsd., fv. yfirm. öldrunarmála í Kópavogi
8. Gunnleifur Gunnleifsson, forvarna- og fræðslufulltrúi
9. Alexander Arnarson, málarameistari
10. Sigurbjörg Vilmundardóttir, leikskólakennari
11. Sigmar Ingi Sigurðarson, lögfræðingur
12. Linda Wessman, konditor/lífsstílsleiðbeinandi
13. Íris Lind Verudóttir, deildarstjóri/söngkona
14. Mariena Anna Frydrysiak, viðskiptafræðingur
15. Kristján Matthíasson, doktor í efnafræði
16. Björg Baldursdóttir, aðstoðarskólastjóri
17. Trausti Marel Guðmundsson, nemi
18. Björg Eyþórsdóttir, hjúkrunarfræðinemi
19. Einar Baldursson, grunnskólakennari
20. Hulda Salómonsdóttir, sjúkraliði
21. Einar Kristján Jónsson, rekstrarstjóri
22. Willum Þór Þórsson, alþingismaður

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert