Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð samþykkti einróma tillögu uppstillingarnefndar að framboðslista flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar á fundi sínum fimmtudaginn 20. mars, að því er segir í fréttatilkynningu.
Framboðslistann skipa eftirfarandi:
- Jens Garðar Helgason, bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri Fiskimiða.
- Valdimar O. Hermannsson, bæjarfulltrúi og rekstrarstjóri HSA.
- Kristín Gestsdóttir, ráðgjafi innkaupa hjá Alcoa Fjarðaáli.
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, stöðvarstjóri Olís.
- Ragnar Sigurðsson, svæðisstjóri HSA.
- Sævar Guðjónsson, bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri Ferðaþjónustunnar á Mjóeyri.
- Borghildur Stefánsdóttir, varabæjarfulltrúi.
- Birkir Hauksson, starfsmaður Alcoa Fjarðaáls.
- Sigurbergur Ingi Jóhannsson, nemi.
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, leikskólakennari.
- Margeir Margeirsson, starfsmaður á vélaverkstæði.
- Ingi Lár Vilbergsson, vélfræðingur og formaður björgunarsveitarinnar Ársólar.
- Kristín Ágústsdóttir, landfræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands.
- Óðinn Magnason, veitingamaður.
- Lísa Lotta Björnsdóttir, þjónustustjóri.
- Agnar Bóasson, framkvæmdastjóri hjá Bíley.
- Guðlaug Dana Andrésdóttir, starfsmaður Alcoa Fjarðaáls.
- Tómas Zoega, rafvirkjameistari.