Bæjarstjórinn í baráttusætinu

Framboðslisti Sjálfstæðisfélagsins í Hveragerði.
Framboðslisti Sjálfstæðisfélagsins í Hveragerði.

Tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista Sjálfstæðisfélagsins í Hveragerði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor var samþykkt einróma á fjölmennum fundi félagsins í Hveragerði í kvöld. Listann skipa átta karlar og sex konur. Konurnar raðast ofarlega á listann en í efstu átta sætum er jafnt kynjahlutfall.

Aldís Hafsteinsdóttir, núverandi bæjarstjóri og bæjarstjóraefni sjálfstæðismanna er í baráttusætinu en Ninna Sif Svavarsdóttir prestur og forseti bæjarstjórnar leiðir listann. Eyþór Ólafsson verkfræðingur og öryggisstjóri skipar annað sætið og Unnur Þormóðsdóttir, hjúkrunarstjóri skipar þriðja sætið.

Listinn er eftirfarandi:

  1. Ninna Sif Svavarsdóttir
  2. Eyþór Ólafsson
  3. Unnur Þormóðsdóttir
  4. Aldís Hafsteinsdóttir
  5. Þórhallur Einisson
  6. Friðrik Sigurbjörnsson
  7. Berglind Sigurðardóttir
  8. Birkir Sveinsson
  9. Ingimar Guðmundsson
  10. Alda Pálsdóttir
  11. Jakob Fannar Hansen
  12. Þorkell Pétursson
  13. Sæunn Freydís Grímsdóttir
  14. Örn Guðmundsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert