Framsókn og sjálfstæðismenn í samstarf

Borgarnes.
Borgarnes. mbl.is/Sigurður Bogi

Gengið var frá meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Borgarbyggð í hádeginu samkvæmt fréttavefnum Skessuhorn. Fulltrúar flokkanna undirrituðu samkomulag þess efnis í ráðhúsinu í Borgarnesi. 

Ennfremur var tilkynnt að nýr sveitarstjóri hefði verið ráðinn en samkomulag hafi verið um að ráða Kolfinnu Jóhannesdóttir í starfið. Nánar verður greint frá málefnasamningi meirihlutans síðar í dag segir í fréttinni.

Frétt Skessuhorns

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert