Guðni Th. með 56,6% fylgi

Fjórir frambjóðendur sem mælast nú með mest fylgi: Guðni Th. …
Fjórir frambjóðendur sem mælast nú með mest fylgi: Guðni Th. Jóhannesson, Davíð Oddsson, Andri Snær Magnason og Halla Tómasdóttir.

Guðni Th. Jóhannesson mælist með mest fylgi forsetaframbjóðenda, 56,6%, í nýrri könnun MMR. Davíð Oddsson mælist með 20,1% fylgi, Andri Snær Magnason með 10,9% og Halla Tómasdóttir með 6,9%. Stuðningur við Sturlu Jónsson mældist 2,2%. Aðrir frambjóðendur mældust samanlagt með 3,3% fylgi.

Fylgi Guðna hefur lækkað um 10 prósentustig frá síðustu könnun MMR þar sem hann mældist með 65,6% fylgi. Þá hefur fylgi Höllu aukist um tæp fimm prósentustig á milli kannanna. Fylgi Davíðs eykst um tvö prósentustig. Fylgi Andra er óbreytt frá síðustu könnun.

Þegar spurt var hvern svarendur myndu líklegast kjósa ef þeirra fyrsta val væri ekki í framboði kom í ljós að Guðni Th. Jóhannesson var oftast nefndur en Andri Snær Magnason og Halla Tómasdóttir komu þar á eftir. Aðrir frambjóðendur voru sjaldnar nefndir sem annað val.

Könnunin var framkvæmd dagana 26. maí til 1. júní 2016 og var heildarfjöldi svarenda 963 einstaklingar, 18 ára og eldri.

Spurt var: „Eftirfarandi einstaklingar hafa lýst yfir framboði til embættis forseta Íslands. Hvern þeirra myndir þú kjósa ef kosið yrði til forseta í dag?“

Svarmöguleikar voru þeir sem sjást á myndinni auk svarmöguleikanna „skila auðu“, „Myndi ekki kjósa“, „Veit ekki/ óákveðin(n)“ og „Vil ekki svara“.

Þau sem ekki tóku afstöðu voru síðan spurð: „En hver yrði líklegast fyrir valinu?“, þar sem svarmöguleikar voru hinir sömu og í fyrri spurningu. 

Samtals voru 86,6% sem tóku afstöðu, aðrir kváðust óákveðnir (7,3%), myndu skila auðu (2,0%), myndu ekki kjósa (0,5%) eða  vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,6%). 

Afstöðumunur milli hópa

Þegar fylgi fimm efstu frambjóðendanna var skoðað eftir samfélagshópum og stjórnmálaskoðunum kom í ljós að Guðni Th. Jóhannesson nýtur stuðnings nokkuð jafnt á flesta hópa. Á bilinu 53-63% kjósenda sögðust styðja Guðna óháð kyni, aldri og búsetu. Guðni naut hins vegar nokkuð minna fylgis meðal þeirra sem studdu Framsóknarflokk og Sjálfstæðisflokk samanborið við stuðningsfólk annarra flokka.

Davíð Oddson mældist aftur á móti með hlutfallslega aukinn stuðning meðal karla, þeirra sem eldri eru og stuðningsfólks Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. 

Andri Snær Magnason hafði hlutfallslega mest fylgi meðal kvenna og þeirra sem yngri voru en nær engan stuðning meðal stuðningsfólks Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.

Stuðningur við Höllu Tómasdóttur reyndist áberandi mestur meðal stuðningsfólks Samfylkingarinnar.

Stuðningur við Sturlu Jónsson mældist ekki áberandi hærri í einum hópi umfram annan. 

Þróun á fylgi forsetaframbjóðendanna í síðustu vikur.
Þróun á fylgi forsetaframbjóðendanna í síðustu vikur. Skjáskot/MMR

Svarendur voru einnig spurðir hver yrði líklegast fyrir valinu ef þeirra fyrsta val hefði ekki verið í framboði. Þar kom í ljós að flest stuðningsfólk Andra Snæs Magnasonar (61%) og Höllu Tómasdóttur (50%) sögðust kjósa Guðna Th. Jóhannesson ef þeirra fyrsta val væri ekki í framboði.

Af stuðningsfólki Davíðs Oddssonar sögðust 27% kjósa Guðna Th. Jóhannesson og 21% Höllu Tómasdóttur ef Davíðs Oddson væri ekki í framboði. Þá voru 29% af stuðningsfólki Guðna Th. Jóhannessonar sem tilgreindu Andra Snæ Magnason sem sitt annað val og 21% nefndu Höllu Tómasdóttur sem sitt annað val. Aðrir frambjóðendur voru mun sjaldnar nefndir sem valkostur númer tvö fyrir komandi forsetakosningar.

Hér má sjá könnunina í heild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert