23 í framboði Pírata á Suðurlandi

Frá fyrri hluta aðalfundar Pírata í júní á þessu ári.
Frá fyrri hluta aðalfundar Pírata í júní á þessu ári. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Prófkjör Pírata í Suðurkjördæmi fyrir komandi þingkosningar hófst á miðnætti í dag, en kosning fer fram í rafrænu kosningakerfi flokksins. Kosningin stendur í 10 daga, eða til miðnættis aðfaranótt 12. ágúst. 23 eru í framboði og bjóða tvær sig fram í fyrsta sæti. Flestir aðrir taka þó ekki fram sæti sem þeir sækjast eftir.

Í Suðurkjördæmi eru 10 þingmenn og því þarf listinn að innihalda 20 manns. Í kosningunni verður notast við Shylze-aðferð við uppröðum sem virk­ar með þeim hætti að kjós­end­ur for­gangsraða fram­bjóðend­um eins langt niður og þeir kjósa. Þannig get­ur einn kjós­andi raðað fimm fram­bjóðend­um á lista á meðan ann­ar raðar öll­um fram­bjóðend­un­um.

Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Pírata, segir í samtali við mbl.is að 431 hafi kosningarétt í prófkjörinu, en á síðustu tveimur mánuðum hafa um 100 bæst í hóp Pírata.

Til að kjósa þarf félagsmaður að hafa verið skráður í 30 daga í flokkinn. Sigríður Bylgja segir að hafi fólk ekki náð fullum 30 dögum geti það kosið innan kosningatímabilsins ef 30 daga markinu er náð á þeim tíma.

Þær Elsa Kristjánsdóttir og Elín Finnbogadóttir bjóða sig báðar fram í fyrsta sæti listans. Flestir aðrir frambjóðendur láta vera að tilgreina sæti sem þeir sækjast eftir, en meðal þeirra er Smári McCarthy sem leiddi lista Pírata í kjördæminu í síðustu kosningum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert