Öll úrslit liggja fyrir

Frá kjördæmisþinginu.
Frá kjördæmisþinginu.

Úrslit eru kunn í kosningu um 4. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Það er Sigfús Karlsson sem hreppti sætið með tæp 57% greiddra atkvæða.

Í kjöri voru þau Hjálm­ar Bogi Hafliðason sem hlaut tæp 42% atkvæða, Mar­grét Jóns­dótt­ir sem hlaut aðeins 3 atkvæði og þá Sig­fús sem hlaut alls 112 atkvæði. 202 greiddu atkvæði en auðir og ógildir seðlar voru 4. 

Þegar þessi úrslit voru ljós stóð Margrét Jónsdóttir ein eftir í framboði um 5. sæti listans. Því fór ekki fram kosning um 5. sætið og Margrét því réttkjörin í sætið. 

Úrslit í öll sæti kunn

Þannig liggja fyrir úrslit kosninga á tvöföldu kjördæmisþingi Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi.

1. sæti: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

2. sæti: Þórunn Egilsdóttir

3. sæti: Líneik Anna Sævarsdóttir

4. sæti: Sigfús Karlsson

5. sæti: Margrét Jónsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert