Guðmundur leiðir lista Alþýðufylkingarinnar

Guðmundur Magnússon leikari.
Guðmundur Magnússon leikari.

Guðmundur Magnússon leikari leiðir lista Alþýðufylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi í alþingiskosningum 2016. 

„Guðmundur er fæddur í Reykjavík 1947. Hann útskrifaðist sem leikari 1968. Guðmundur varð fyrir slysi 1976 og hefur verið lamaður síðan. Hann hefur starfað með Sjálfsbjörg, SEM samtökunum og Öryrkjabandalaginu, og var formaður ÖBÍ í fjögur ár.

Guðmundur hefur unnið sem leikari og leikstjóri, kennt á námskeiðum í leiklist og framsögn og við Heyrnar- og talmeinastöðina. Hann hefur verið forstöðumaður Dagvistar Sjálfsbjargarheimilisins.

Aðgengismál fatlaðra hafa verið Guðmundi mjög hugleikin og hann segir leiðarljós sitt vera samning Sameinuðu þjóðanna um rétt fólks með fötlun. Hann situr í verkefnisstjórn um notendastýrða persónulega aðstoð.

Guðmundur var í KSML þegar hann var ungur. Hann er stofnfélagi í Vinstri-grænum og var varaþingmaður þeirra fyrir Reykjavíkurkjördæmi suður, og sat sem slíkur á þingi 2005 og 2008,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert