Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður, mun leiða lista Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi en aðeins munaði 21 atkvæði á henni og Bjarna Jónssyni í fyrsta sæti listans.
Alls voru 859 atkvæði greidd, þar af 787 gild atkvæði. Á kjörskrá voru 1102, sem jafngildir 78% kjörsókn. Kjörstjórn mun leggja tillögu að heildarlista á fundi á Hvanneyri næstkomandi fimmtudag kl. 20:00.
Niðurstöður forvalsins voru eftirfarandi:
Hér er hægt að skoða hversu mörg atkvæði hver frambjóðandi hlaut í forvalinu