Sitja fyrir svörum Gráa hersins

Fulltrúar stjórnmálaflokkanna sem sækjast eftir stuðningi í komandi alþingiskosningum voru …
Fulltrúar stjórnmálaflokkanna sem sækjast eftir stuðningi í komandi alþingiskosningum voru nýverið gestir í beinni útsendingu RÚV. Í kvöld sitja fulltrúarnir fyrir svörum Gráa hersins. mbl.is/Golli

Fulltrúar allra stjórnmálahreyfinganna sitja fyrir svörum á fundi Félags eldri borgara (FEB) og Gráa hersins sem fer fram Háskólabíói í kvöld, en fundurinn hefst kl. 19:30. Hægt er að fylgjast með honum í beinni útsendingu á mbl.is.

Grái herinn og FEB hafa undanfarin misseri lagt mikla áherslu á bót á kjörum eftirlaunafólks, m.a. með kröfu um 300 þúsund króna lágmarkslaun frá Tryggingastofnun og að hætt verði skerðingum á þeim vegna annarra tekna, svo sem greiðslna úr lífeyrissjóðum. Þess vegna telja samtökin nýtt frumvarp um breytingar á lögum um almannatryggingar ekki ganga nógu langt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert