Magnús Þór leiðir lista Flokks fólksins í Reykjavík norður

Magnús Þór Hafsteinsson.
Magnús Þór Hafsteinsson.

Magnús Þór Hafsteinsson ritstjóri, rithöfundur og fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins, mun skipa oddvitasæti Flokks fólksins í Reykjavíkurkjördæmi norður í komandi Alþingiskosningum.

Flokkur fólksins berst fyrir göfugum málstað sem er að rétta hlut þeirra verst settu í samfélaginu,“ er haft eftir Magnúsi Þór í fréttatilkynningu. „Ég hef hrifist af einurð og festu Ingu Sælands formanns Flokks fólksins. Hún er sú rödd sem alþýða þessa lands hefur beðið eftir að heyra frá hruni.” 

 Magnús Þór sat á Alþingi fyrir Frjálslynda flokkinn kjörtímabilið 2003-2007. Undanfarin ár hefur hann sinnt bókaskrifum, hvalveiðum, blaðamennsku og ritstjórn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert