Flestir vildu VG í ríkisstjórn

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna. mbl.is/Golli

Hátt í 30% þeirra sem kusu í nýafstöðnum alþingiskosningum tóku ekki ákvörðun fyrr en samdægurs og þar af ákváðu nær 17% sig ekki fyrr en í kjörklefanum eða á kjörstað. Þetta kemur fram í Þjóðarpúlsi Gallup.

Einnig var spurt hvaða flokk fólk myndi sjá mynda nýja ríkisstjórn. Vinstri grænir og Björt framtíð voru flokkarnir sem oftast var minnst á. Ríflega 67% nefndu Vinstri græn og tæplega 66% Bjarta framtíð. Nær 59% nefndu Viðreisn og rúmlega 57% Sjálfstæðisflokkinn. Rúm 34% nefna Píarata, tæplega 24% Framsóknarflokkinn og rétt yfir 20% Samfylkinguna. 

Netkönnun var framkvæmd dagana 3. - 14. nóvember. Heildarúrtakið voru 1.424 og svarhlutfall var 59,1%. 

Innan við þriðjungur þeirra sem kaus hafði tekið ákvörðun um hvað hann ætlaði að kjósa mánuði fyrir kosningar, eða tæp 31%. Ríflega 5% tóku ákvörðun 3-4 vikum fyrir kosningar, rúmlega 14% tóku ákvörðun 1-2 vikum fyrir kosningar og nær 20% ákváðu sig í vikunni sem kosið var.

Kemur fram að mikill munur er á því hvenær fólk tók ákvörðun eftir því hvað það kaus. Þeir sem kusu Sjálfstæðisflokkinn voru líklegastir til að ákveða sig meira en mánuði fyrir kosningar og þeir sem kusu Bjarta framtíð voru líklegastir til að ákveða sig á kjörstað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert